Þjóðskrá15. október 2015

Upplýsingar um fyrstu kaup

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra kaupsamninga þar sem kaupendur hafa fengið afslátt af stimpilgjöldum vegna fyrstu kaupa. Þessi frétt mun birtast ársfjórðungslega héðan í frá sem hluti af fréttinni „Hverjir eiga viðskipti“ sem er næst gefin út þann 28. október.

Í vinnslunni eru taldir þinglýstir kaupsamningar og afsöl um íbúðarhúsnæði án undangengins kaupsamnings og eignayfirlýsingar. Ekki eru taldar með eignatilfærslur byggðar á erfðum eða öðru slíku. Heimild til lægri stimpilgjalda vegna fyrstu kaupa hefur verið til staðar frá 1. júlí 2008. Af þessum sökum eru engar þinglýstar upplýsingar um fyrstu kaup fyrir þann tíma. Rannsókn á því hvort um fyrstu kaup var að ræða fór fram við móttöku skjala til þinglýsingar hjá sýslumönnum.

Upplýsingar um fyrstu kaup 3. ársfjórðung 2015

  Fjöldi kaupsamninga Þar af fyrstu kaup  Hlutfall fyrstu kaup 
 Höfuðborgarsvæðið  1993  430  22%
 Suðurnes  215  65  30%
 Vesturland  152  24  16%
 Vestfirðir  40  12  30%
 Norðurland vestra  42  12  29%
 Norðurland eystra  262  53  20%
 Austurland  85  23  27%
 Suðurland  223  52  23%

Smelltu hér til að skoða gögn frá 2008 í Excel. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar