Hjúskaparstaða ekki skráð í þjóðskrá

Hjúskaparstaða er óupplýst í þjóðskrá

Ef einstaklingur er með óupplýsta hjúskaparstöðu í þjóðskrá er nauðsynlegt að skila inn gögnum um hjúskaparstöðu frá heimalandi einstaklingsins. Óupplýst hjúskaparstaða getur haft áhrif á réttindi einstaklings, t.d. lánshæfi og rétt til bóta.

Nauðsynleg gögn eftir hjúskaparstöðu

  • Aldrei í hjúskap: skila þarf vottorði um að einstaklingur sé ógiftur. Vottorð má ekki vera eldra en 6 mánaða.
  • Í hjúskap: skila þarf hjónavígsluvottorði.
  • Fráskilin/nn: skila þarf inn skilnaðargögnum, eða vottorði með skilnaðardagsetningu
  • Maki látinn: skila þarf inn hjúskaparstöðuvottorði, eða hjónavígsluvottorði og dánarvottorði fráfallins maka.

Kröfur til skjala

  • Skila þarf gögnum í frumriti ásamt löggiltri skjalaþýðingu
  • Tekið er við vottorðum á alþjóðlegu formi.
  • Ef vottorð er frá landi utan EES þá þarf Apostille vottun eða keðjustimplun á vottorðið. 
  • Ef vottorð er rafrænt undirritað af viðeigandi stjórnvaldi þá má senda vottorðið í tölvupósti.
  • Hafa skal samband við skráningaryfirvöld í heimalandi til að athuga með hvaða hætti skal afla vottorða.
  • Ef upprunaland gefur ekki út vottorð um að einstaklingur hafi aldrei verið í hjúskap þá þarf viðkomandi að hafa samband við þjóðskrá, netfangið er skra@skra.is 
  • Hægt er að sjá hjúskaparstöðu sína inni á Ísland.is undir mínar síður og mín gögn.

Skoða hjúskaparstöðu í þjóðskrá á Ísland.is

Á mínum síðum á Ísland.is má meðal annars sjá yfirlit yfir hjúskaparstöðu eins og hún er skráð í þjóðskrá.

Mínar síður á Ísland.is