Fasteignir15. júní 2022

Tilkynningarseðlar um nýtt fasteignamat 2023 aðgengilegir í pósthólfi á Ísland.is

Fasteignaeigendur geta nálgast tilkynningu um nýtt fasteignamat á fasteignum í þeirra eigu á Ísland.is.

Eigendur fasteigna geta nú nálgast tilkynningarseðil um mat á eignum sínum í pósthólfinu á www.island.is

Fasteignir eru endurmetnar árlega út frá nýjustu matsforsendum og byggir matið meðal annars á upplýsingum úr þinglýstum kaupsamningum auk fjölmargra annarra þátta sem hafa áhrif á verðmæti fasteigna. Nýja fasteignamatið miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2022. Það tekur gildi 31. desember 2022 og gildir fyrir árið 2023. Frestur til að gera athugasemdir við nýtt fasteignamat er til 30. desember 2022.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar