Fólk16. janúar 2024

Hlutfall erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum og landsvæðum þann 1. des. 2023

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2023. Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 61,7% niður í 3,8% þó að jafnaði er hlutfallið um 18,7% þegar horft er til allra sveitarfélaga.

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2023.

Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 61,7% niður í 3,8% þó að jafnaði er hlutfallið um 18,7% þegar horft er til allra sveitarfélaga.

Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Mýrdalshreppi. Alls eru 61,7% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 601 erlendir ríkisborgarar af alls 974 íbúum hreppsins. Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 43,7% og Bláskógabyggð með 37,6% íbúa.

Sveitarfélög með hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Árneshreppi. Alls eru 3,8% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 2 erlendir ríkisborgarar af alls 53 íbúum hreppsins. Næst lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skagabyggð með 4,6% og Eyjafjarðarsveit með 5,5% íbúa.

Sveitarfélög með lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang á Suðurnesjum, 29,9% íbúa og Vestfirðir koma næst með 22,6% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er á Norðurlandi eystra, 14,1%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum þann 1. desember 2023.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar