Í maí 2025 voru 6.259 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 6.789 vegabréf gefin út í maí árið 2024.
Þá voru gefin út 426 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af um 95% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars 2024.
Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.