Þjóðskrá02. júlí 2025

Útgáfa vegabréfa og nafnskírteina í júní 2025

Í júní 2025 voru 6.630 ​almenn íslensk vegabréf gefin út og 517 nafnskírteini.

 

Í júní 2025 voru 6.630 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 6.060 vegabréf gefin út í júní árið 2024.

Þá voru gefin út 517 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af um 93% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars 2024.

Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar