Í júlí 2025 voru 5.885 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 7.046 vegabréf gefin út í júlí árið 2024.
Þá voru gefin út 557 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af um 93% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars 2024.
Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.