Fólk07. október 2025

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. október 2025

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 751 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2024 til 1. október 2025 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 725 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 174 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 276 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 499 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Grímsnes- og Grafningshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Grímsnes- og Grafningshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2024 um 13,6% en íbúum þar fjölgaði um 83 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Fljótsdalshreppi eða um 13%.  Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 11 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 51 sveitarfélögum. 

Grindavík

Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 530 á tímabilinu eða um 37,6%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2024.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar