Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.058 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2024 til 1. nóvember 2025 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 916 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 200 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 327 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 524 íbúa.
Fjölgar hlutfallslega mest í Fljótsdalshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Fljótsdalshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2024 um 16% en íbúum þar fjölgaði um 16 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Grímsnes- og Grafningshreppi eða um 14,6%. Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 12 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 50 sveitarfélögum.
Grindavík
Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 514 á tímabilinu eða um 36,5%.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2024.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.