Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 25 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2025 til 1. janúar 2026 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 65 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 26 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 53 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 39 íbúa.
Fjölgar hlutfallslega mest í Súðavíkurhreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Súðavíkurhreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2025 um 2,2% en íbúum þar fjölgaði um 5 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Fljótsdalshreppi eða um 1,7%. Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 31 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 31 sveitarfélögum.
Grindavík
Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 19 á tímabilinu eða um 2,1%.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburður við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2025.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.