Alls voru 224.088 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. febrúar síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og er því fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins. Næst fjölmennasta félagið er Kaþólska kirkjan með 15.968 skráða meðlimi og í þriðja sæti er Fríkirkjan í Reykjavík með 10.058 skráða meðlimi.
Fjölgað mest í Kaþólsku kirkjunni
Frá 1. desember 2025 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélögum verið mest í Kaþólsku kirkjunni eða um 51 meðlim. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá Nýja Avalon, eða um 525%.
Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 30.868 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 0,2% lækkun frá 1. des 2025. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 95.691 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2021-2025.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.