Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 498 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2025 til 1. mars 2026 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 206 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 70 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 23 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 58 íbúa.
Fjölgar hlutfallslega mest í Fljótsdalshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Fljótsdaleshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2025 um 5,9% en íbúum þar fjölgaði um 7 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Súðavíkurhreppi eða um 3,5%. Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 26 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 36 sveitarfélögum.
Grindavík
Íbúum Grindavíkurbæjar fjölgaði um 7 á tímabilinu eða um 0,8%.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburður við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2025.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.