Þjóðskrá09. mars 2026

Útgáfa vegabréfa og nafnskírteina í febrúar 2026

Í febrúar 2026 voru 5.742 ​almenn íslensk vegabréf gefin út og 395 nafnskírteini.

 

Í febrúar 2026 voru 5.742 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 6.300 vegabréf gefin út í febrúar árið 2025.

Þá voru gefin út 395 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af um 94% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars 2024.

Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar