Fólk30. mars 2026

Útgáfa kjörskrár fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026

Kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí 2026 verður gefin út þann 8. apríl nk. líkt og lög kveða á um.

Tilkynningar um breytt lögheimili þurfa að hafa borist Þjóðskrá fyrir kl. 12 þann 8. apríl nk. til að öðlast gildi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara þann 16. maí 2026. Skráning kjósenda á kjörskrá miðast við skráningu lögheimilis kl. 12 á viðmiðunardegi kjörskrár þann 8. apríl 2026.

Því er mikilvægt að tilkynningar um lögheimilis flutning berist Þjóðskrá eigi síðar en 7. apríl svo búið verði að skrá breytingarnar í þjóðskrá fyrir útgáfu kjörskrár.

Vefuppflettið Hvar á ég að kjósa verður aðgengilegt á vef Þjóðskrár þann 10. apríl nk. þar sem kjósendur geta athugað hvar þeir eru á kjörskrá. 

Nánari upplýsingar um kosningarnar má finna á kosningar.is

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar