Þjóðskrá07. apríl 2026

Útgáfa vegabréfa og nafnskírteina í mars 2026

Í mars 2026 voru 6.476 ​almenn íslensk vegabréf gefin út og 457 nafnskírteini.

 

Í mars 2026 voru 6.476 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 6.881 vegabréf gefin út í mars árið 2025.

Þá voru gefin út 457 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af um 93% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars 2024.

Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar