Kynningarfundur um aðgreinanlega kerfiskennitölu
Þjóðskrá hefur verið falið að endurvekja verkefni um aðgreinanlega kerfiskennitölu. Ráðgjafafyrirtækið Intellecta hefur gert ítarlega greiningu með helstu hagaðilum, skoðað þær útfærslur sem lágu fyrir á aðgreinanlegri kerfiskennitölu og valið útfærslu. Krafan var að auðvelt væri að aðlaga nýja útfærslu að innri og ytri kerfum í samfélaginu. Greiningin átti sér stað á tímabilinu 11. desember 2023 - 4. janúar 2024.
Þann 17. október næstkomandi mun Þjóðskrá halda kynningarfund á nýrri útfærslu á aðgreinanlegri kerfiskennitölu, eftir úttekt og greiningu Intellecta. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Þjóðskrár í Borgartúni 21 á þriðju hæð klukkan 8:30.
Við biðjum ykkur að senda tvo fulltrúa á fundinn, þann aðila sem ber ábyrgð á málaflokknum innan ykkar raða og þann sem ber ábyrgð á tæknilegri útfærslu í málaflokknum. Mikilvægt er að ekki komi fleiri í hús frá hverjum hagaðila sökum plássleysis.
Fundardagskrá:
- 8:30 Kaffi
- 9:00 Júlía Þorvaldsdóttir framkvæmdarstjóri þjónustu Þjóðskrár setur fundinn
- 9:10 Guðmundur Arnar Þórðarson, ráðgjafi Intellecta. Ný kerfiskennitala, lagalegar kröfur og tæknileg útfærsla
- 9:40 Umræður og fyrirspurnir
- 10:15 Fundi lýkur