Rafræn vöktun

Fræðsla vegna notkunar eftirlitsmyndavéla hjá Þjóðskrá.

Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er: Þjóðskrá Íslands, Borgartúni 21, Sími: 515-3000 og netfang: skra@skra.is.

Persónuverndarfulltrúi: Hægt er að beina fyrirspurnum, ábendingum eða kvörtunum um vinnslu persónuupplýsinga til persónuverndarfulltrúa Þjóðskrár Íslands á netfangið: personuvernd@skra.is. 

Tilgangur vöktunar

Rafræn vöktun fer fram í öryggis- og eignavörsluskyni. Vöktunin fer fram með eftirlitsmyndavélum sem staðsettar eru í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands. Við umrædda vöktun er þess gætt að virða einkalífsrétt þeirra sem sæta vöktun og forðast er allt óþarfa inngrip í einkalíf þeirra.

Tegundir persónuupplýsinga

Ef nauðsyn þykir, þ.e. vegna öryggis- og eignavörslu, er unnið með myndefni sem verður til við vöktunina þar sem sjá má einstaklinga, svo sem starfsmenn, viðskiptavini eða utanaðkomandi aðila, sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.

Heimild til vinnslu

Vinnslan byggist á 6. tl. 1. mgr. 9. gr. og 6. tl. 1. mgr. 11. gr. persónuverndarlaga nr. 90/2018. Rafræn vöktun fer fram á grundvelli lögmætra hagsmuna Þjóðskrár Íslands og í þeim tilgangi að gæta öryggis og eignavörslu.

Viðtakendur myndefnis

Allur aðgangur að efni sem verður til við rafræna vöktun er aðgangsstýrður og hefur einungis ákveðið starfsfólk stofnunarinnar aðgang. Myndefni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað kann að vera afhent lögreglu eða stofnuninni kann að vera skylt á grundvelli laga að afhenda myndefni.

Varðveislutími myndefnis

Myndefni er varðveitt í 30 daga. Að þeim tíma liðnum er myndefni eytt nema málefnalegar og rökstuddar ástæður séu til lengri varðveislu.

Réttindi einstaklinga

Þú átt rétt á að skoða myndefni þar sem þú sést. Einnig áttu rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.

Kvörtun til Persónuverndar

Ef þú telur að vinnsla persónuupplýsinga um þig vegna rafrænnar vöktunar fari gegn persónuverndarlögum átt þú rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd.