Hjón eiga að hafa sama lögheimili. Þegar lögheimili er flutt innanlands er nægjanlegt að annað hjóna tilkynni. Þegar lögheimili er flutt til útlanda þarf samþykki maka einnig að liggja fyrir.
Hjón eiga sitthvort lögheimilið. Hjónum er heimilt að skrá hvort um sig með sitt eigið lögheimili. Sitthvort lögheimili hjóna er tilkynnt með flutningstilkynningu. Flutning er hægt að tilkynna rafrænt með rafrænum skilríkjum. Einnig er hægt að mæta í afgreiðslu Þjóðskrár í Reykjavík. Vinsamlegast athugið að framvísa þarf löggildum skilríkjum: vegabréfi, íslensku ökuskírteini eða nafnskírteini. Samþykki maka þarf að liggja fyrir svo hægt sé að skrá sitthvort lögheimili hjóna.
Fyrirhugaður skilnaður. Ef hjón hyggjast skilja þarf að taka það fram í athugsemdum flutningstilkynningar að um fyrirhugaðan skilnað er að ræða. Ganga þarf formlega frá skilnaði hjá Sýslumanni. Ef lögskilnaður hefur þegar farið fram erlendis þarf að leggja fram gögn þess eðlis.
Taka upp samvistir að nýju. Ef hjón, sem hafa verið skilin að borði og sæng, ákveða að taka upp samvistir á ný, þarf beiðni um niðurfellingu réttaráhrifa skilnaðarins að berast Sýslumanni frá báðum aðilum. Hjón geta óskað eftir því að réttaráhrif skilnaðar að borði og sæng falli niður með því að fylla út beiðni á vef sýslumanns.
Sambúðarslit og skráning lögheimilis. Grundvöllur sambúðarskráningar er að sambúðaraðilar hafi sameiginlegt lögheimili. Ekki er hægt að skrá sig úr sambúð eingöngu með því að senda inn flutningstilkynningu ef að sambúðaraðilar eiga börn saman. Ekki er því hægt að senda inn flutningstilkynningu vegna sambúðarslita fyrr en Sýslumaður hefur staðfest forsjá barns eða barna.
Ef að sambúðaraðilar eiga ekki börn er sambúð slitið með hefðbundinni flutningstilkynningu.
Munið að tilkynna Póstinum um breytt heimilisfang. Pósturinn fær ekki sjálfkrafa upplýsingar um flutning frá Þjóðskrá.
Skoða skráningu í þjóðskrá á Ísland.is
Á mínum síðum á Ísland.is má sjá yfirlit yfir lögheimilisskráningu.
Mínar síður á Ísland.isDulið lögheimili
Einstaklingur og fjölskylda á sama lögheimili getur óskað eftir því að fá lögheimili sitt dulið.
Nánar um dulið lögheimiliVeitur
Ef þú ert að flytja eða vilt að nýr notandi taki við sem greiðandi af ákveðnum mælum er mikilvægt að tilkynna það hjá Veitum.
Tilkynna flutning hjá Veitum