Fingraför, hæð og undirskrift

Fingraför

Fingraför eru í örgjörva íslenskra vegabréfa sem gefin eru út eftir 28. júní 2009. Börn yngri en 12 ára eru undanþegin fingrafaratöku. Ef ekki er hægt að taka fingraför af vísifingrum þeirra sem eldri eru en 12 ára má nota aðra fingur. 

Þegar tekin eru fingraför af umsækjendum skal gæta réttinda þeirra í samræmi við grunnreglur mannréttindasáttmála Evrópu og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, þannig að þeir haldi virðingu sinni þótt erfiðleikar þessu samfara komi upp.

Fingraför í vegabréfum eru vernduð í samræmi við alþjóðlegar reglur og staðla, þannig að eingöngu er hægt að nota þau til að bera saman við fingraför sem tekin eru af handhafa við landamæravörslu og til að ganga úr skugga um að vegabréfið sé ófalsað.

Hæð og undirskrift

Við 10 ára aldur kemur hæð og undirskrift einstaklings í vegabréfið og miðast það við aldur barns á umsóknardegi.