Ritun nafns í vegabréfi

Athugið!
Vegabréf skal gefið út með fullu nafni umsækjanda, sbr. 1. gr. laga um mannanöfn nr. 45/1996 og er skipt upp í eiginnöfn og kenninöfn.

Samkvæmt alþjóðlegum reglum og stöðlum eru 38 stafbil í tölvulesanlegu rönd vegabréfsins. Íslensku stafirnir þ, æ og ö taka tvö stafbil. (Þ = TH, Æ = AE, Ö = OE). Ef fullt nafn er lengra en 38 stafbil koma ekki öll nöfnin í tölvulesanlegu röndina, en kenninöfn og fyrsta eiginnafn kemur þó alltaf.

Ítarefni um nafnritun og erlenda stafi í þjóðskrá