Umsóknarferli erlendis

Athugið!
Sendiráð og aðalræðismenn Íslands sjá um umsóknarferli vegabréfa erlendis.

Íslendingar sem staddir eru erlendis og þurfa á vegabréfi að halda snúa sér til sendiráða eða aðalræðismanna Íslands. Listi yfir umsóknarstaði erlendis má finna hér

Ef umsækjandi á ekki opinbert skilríki vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini þarf umsækjandi ásamt tveim vitundarvottum að koma á umsóknarstað, fylla út sannvottun einstaklings og votta í viðurvist að umsækjandi sé sá sem hann segist vera. Vitundarvottar þurfa að hafa meðferðis opinber skilríki, vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini.

Það sem umsækjandi þarf að hafa með sér:

  • Eldra vegabréf.
  • Persónuskilríki með mynd, ökuskírteini eða nafnskírteini, ef eldra vegabréf er glatað.
  • Greiðslu fyrir vegabréfið. Gjaldskrá vegabréfa.

Ertu á leiðinni til útlanda

Hvað þarftu að hafa í huga þegar þú ferð erlendis?

Skoða nánar

Vegabréfið þitt

Þarftu/viltu vita gildistíma vegabréfsins þíns eða hvert númerið er á því?

Nánar á ísland.is

Vegabréf fyrir börn

Upplýsingar um hvernig sótt er um vegabréf fyrir börn

Sjá nánar

Gildistími vegabréfa

Gildistími vegabréfa er tíu ár frá umsóknardegi, en fimm ár fyrir börn yngri en 18 ára.

Skoða nánar

Lög og reglugerðir

Lög og reglugerðir um þjóðskrá, persónuskírteini og kjörskrá

Nánar um lög og reglugerðir