Þjóðskrá04. febrúar 2015

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2015

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2015 var 475. Heildarvelta nam 19,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 41,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 12,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 4,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 2,9 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2015 var 475. Heildarvelta nam 19,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 41,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 12,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 4,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 2,9 milljörðum króna.

Þegar janúar 2015 er borinn saman við desember 2014 fjölgar kaupsamningum um 3,9% og velta eykst um 6%. Í desember 2014 var 457 kaupsamningum þinglýst, velta nam 18,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 40,5 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 27 í janúar 2015 eða 6,5% af öllum samningum. Í desember 2014 voru makaskiptasamningar 16 eða 3,8% af öllum samningum. Í janúar 2014 voru makaskiptasamningar 10 eða 2,4% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Þegar janúar 2015 er borinn saman við janúar 2014 fjölgar kaupsamningum um 4,9% og velta minnkar um 12,6%. Í janúar 2014 var 453 kaupsamningum þinglýst, velta nam 22,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 49,6 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Tafla 1. Samanburður á desember 2014 og janúar 2015

Desember 2014

Janúar 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

12.141

347

12.649

355

4,2%

2,3%

Sérbýli

3.830

79

4.122

73

7,6%

-7,6%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.554

31

2.871

47

12,4%

51,6%

Samtals

18.525

457

19.642

475

6,0%

3,9%

 

 

Tafla 2. Samanburður á janúar 2014 og janúar 2015

Janúar 2014

Janúar 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

13.679

335

12.649

355

-7,5%

6,0%

Sérbýli

3.727

78

4.122

73

10,6%

-6,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

5.069

40

2.871

47

-43,4%

17,5%

Samtals

22.475

453

19.642

475

-12,6%

4,9%

 
Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Janúar 2014
Desember 2014
Janúar 2015
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
413
426
414
0,2%
-2,8%
Makaskipti eða lausafé
11
17
29
163,6%
70,6%
Makaskipti
10
16
27
170%
68,8%
Lausafé
1
1
2
-
-
Hlutfall makaskipta
2,4%
3,8%
6,5%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar