Þjóðskrá08. apríl 2015

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í mars 2015

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í mars 2015 var 713. Heildarvelta nam 27,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 38,8 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 17,8 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,3 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í mars 2015 var 713. Heildarvelta nam 27,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 38,8 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 17,8 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,3 milljörðum króna.

Þegar mars 2015 er borinn saman við febrúar 2015 fjölgar kaupsamningum um 63,5% og velta eykst um 75,9%. Í febrúar 2015 var 436 kaupsamningum þinglýst, velta nam 15,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 36,1 milljón króna.

Makaskiptasamningar voru 29 í mars 2015 eða 4,3% af öllum samningum. Í febrúar 2015 voru makaskiptasamningar 7 eða 1,7% af öllum samningum. Í mars 2014 voru makaskiptasamningar 21 eða 4,2% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Þegar mars 2015 er borinn saman við mars 2014 fjölgar kaupsamningum um 33,5% og velta eykst um 50,3%. Í mars 2014 var 534 kaupsamningum þinglýst, velta nam 18,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 34,5 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Tafla 1. Samanburður á febrúar 2015 og mars 2015

Febrúar 2015

Mars 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

10.146

323

17.832

525

75,8%

62,5%

Sérbýli

4.294

90

7.547

144

75,8%

60,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.286

23

2.290

44

78,1%

91,3%

Samtals

15.725

436

27.669

713

75,9%

63,5%

 

 

Tafla 2. Samanburður á mars 2014 og mars 2015

Mars 2014

Mars 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

12.136

400

17.832

525

46,9%

31,3%

Sérbýli

5.123

104

7.547

144

47,3%

38,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.150

30

2.290

44

99,2%

46,7%

Samtals

18.409

534

27.669

713

50,3%

33,5%

 
Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Mars 2014
Febrúar 2015
Mars 2015
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
504
413
669
32,7%
62,0%
Makaskipti eða lausafé
22
8
32
45,5%
300,0%
Makaskipti
21
7
29
38,1%
314,3%
Lausafé
1
1
3
-
-
Hlutfall makaskipta
4,2%
1,7%
4,3%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar