Þjóðskrá14. apríl 2015

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 1. ársfjórðungur 2015

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2015. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2015. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að  skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða  lífsskoðunarfélögum o.fl.).  Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara  sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga.

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu.

Úr Þjóðkirkjunni gengu 957 fleiri en í hana á tímabilinu. Úr fríkirkjunum þrem gengu 12 fleiri en í þær og 309 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 85 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 769 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 194 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Breytingar á félagsaðild skráðar frá og með 1. janúar  til 31. mars 2015

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1719 1108 110 142 9 107 243
Þjóðkirkjan 151 33 32 1 12 73
Fríkirkjur 98 73 4 6 3 12
Önnur skráð trúfélög 451 179 22 43 4 63 140
Lífsskoðunarfélög 94 50 10 5 28 1
Utan trúfélaga 876 767 41 48 3 17
Ótilgreint 49 39 8 1 1

Miðað er við vinnsludag.
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 1108 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2015. Af þeim 1108 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 73 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 151 í þjóðkirkjuna, þar af voru 33 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 1. ársfjórðungi 2015, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 989 70 45 271 52 524 27
Konur 730 81 53 180 42 352 22
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 989 666 63 69 6 62 123
Konur 730 442 47 73 3 45 120

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1570 73 74 420 93 864
1940 og fyrr 11 2 4 3 1 1
1941-1945 6 2 1 3
1946-1950 18 3 5 4 1 5
1951-1955 41 7 2 10 5 14 3
1956-1960 57 8 2 19 4 22 2
1961-1965 60 4 3 18 8 25 2
1966-1970 71 7 3 22 3 35 1
1971-1975 114 8 10 30 12 52 2
1976-1980 145 6 11 53 16 59
1981-1985 223 13 11 69 8 112 10
1986-1990 387 5 15 91 16 250 10
1991-1995 345 2 5 76 13 236 13
1996 - 2000 74 1 5 19 3 44 2
2001 -2005 18 5 2 5 6
2006-2010 21 2 3 11 4 1
2011 og síðar 128 76 21 20 1 8 2
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1719 1108 110 142 9 107
1940 og fyrr 11 6 3 2
1941-1945 6 3 2 1
1946-1950 18 10 2 5 1
1951-1955 41 21 5 7 2 4 2
1956-1960 57 29 7 7 8 6
1961-1965 60 35 4 6 7 8
1966-1970 71 44 6 9 7 5
1971-1975 114 74 6 12 1 9 12
1976-1980 145 80 14 18 1 13 19
1981-1985 223 141 16 24 15 27
1986-1990 387 296 17 19 2 21 32
1991-1995 345 282 17 12 3 15 16
1996 - 2000 74 60 3 4 1 6
2001 -2005 18 8 2 3 1 4
2006-2010 21 6 1 6 8
2011 og síðar 128 13 5 10 2 98

Höfuðborgarsvæðið: Reykjavík, Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar