Þjóðskrá20. apríl 2015

Velta á markaði 10.apríl - 16.apríl 2015

Vegna verkfalls lögfræðinga hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu 10. apríl til og með 16. apríl 2015 var engum kaupsamningum þinglýst.

Vegna verkfalls lögfræðinga hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu  var engum kaupsamningum þinglýst á tímabilinu 10. apríl til og með 16. apríl 2015.

Á sama tíma var 15 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 291 milljón króna og meðalupphæð á samning 19,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 7 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 337 milljónir króna og meðalupphæð á samning 33,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af voru 8 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 163 milljónir króna og meðalupphæð á samning 16,3 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 10. apríl til og með 16. apríl
Svæði Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 0 0 0 0 59
Seltjarnarnes 0 0 0 0 3
Mosfellsbær 0 0 0 0 5
Kópavogur 0 0 0 0 21
Hafnarfjörður 0 0 0 0 13
Garðabær 0 0 0 0 10
Samtals 0 0 0 0 111
Velta (millj. kr.) 0 4.253
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 0 38,2
Suðurnes 15 4 8 3 14
Velta (millj. kr.) 291 292
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 19,4 20,8
Akureyri 10 3 7 0 14
Velta (millj. kr.) 337 392
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 33,7 28,4
Árborgarsvæðið 10 0 8 2 8
Velta (millj. kr.) 163 136
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 16,3 17,6

 

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar