Þjóðskrá07. október 2015

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í september 2015

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2015 var 875. Heildarvelta nam 36,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 41,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,1 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 6,2 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2015 var 875. Heildarvelta nam 36,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 41,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 7,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 6,2 milljörðum króna.

Þegar september 2015 er borinn saman við ágúst 2015 fjölgar kaupsamningum um 12,2% og velta eykst um 25,1%. Í ágúst 2015 var 780 kaupsamningum þinglýst, velta nam 29 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 37,1 milljón króna.

Þegar september 2015 er borinn saman við september 2014 fjölgar kaupsamningum um 63,9% og velta eykst um 91,7%. Í september 2014 var 534 kaupsamningum þinglýst, velta nam 18,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 35,4 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 16 í september 2015 eða 2% af öllum samningum. Í ágúst 2015 voru makaskiptasamningar 13 eða 1,8% af öllum samningum. Í september 2014 voru makaskiptasamningar 19 eða 3,8% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á ágúst 2015 og september 2015

Ágúst 2015

September 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

18.641

594

22.108

663

18,6%

11,6%

Sérbýli

8.000

148

7.948

152

0,7%

2,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.318

38

6.161

60

165,7%

57,9%

Samtals

28.959

780

36.216

875

25,1%

12,2%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á september 2014 og september 2015

September 2014

September 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

12.101

407

22.108

663

82,7%

62,9%

Sérbýli

4.744

93

7.948

152

67,5%

63,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.047

34

6.161

60

201,0%

76,5%

Samtals

18.891

534

36.216

875

91,7%

63,9%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
September 2014
Ágúst 2015
September 2015
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
500
742
815
63%
9,8%
Makaskipti eða lausafé
21
16
17
-19%
6,3%
Makaskipti
19
13
16
-15,8%
23,1%
Lausafé
2
3
2
-
-
Hlutfall makaskipta
3,8%
1,8%
2%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar