Þjóðskrá21. október 2015

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í september 2015

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 142,1 stig í september 2015 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 2,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 142,1 stig í september 2015 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 2,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í september 2015.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 1.290 samningar, sem þinglýst var í september 2015. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í september 2015 eru því unnar upp úr 679 leigusamningum sem þinglýst var í september 2015.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í september 2015 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

2881

2481

2112

1910

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3038

2126

1933

1805

Kópavogur

2646

2017

1835

1660

Garðabær og Hafnarfjörður

3528

1992

1851

1511

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

2858

2229

1877

1648

Breiðholt

3214

2020

1820

1545

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

1909

-

Suðurnes

-

1624

1390

1063

Vesturland

-

1223

1111

1188

Vestfirðir

-

-

1022

762

Norðurland nema Akureyri

-

-

1153

850

Akureyri

-

1916

1510

1456

Austurland

-

-

1069

969

Suðurland

-

1395

1463

888

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar