Þjóðskrá30. desember 2015

Fasteignamarkaðurinn árið 2015

Um 11.300 kaupsamningum var þinglýst árið 2015 á landinu öllu og námu heildarviðskipti með fasteignir tæplega 370 milljörðum króna. Meðalupphæð á hvern samning var um 33 milljónir króna. Til samanburðar má sjá að árið 2014 var veltan rúmlega 300 milljarðar, kaupsamningar 9.402 og meðalupphæð hvers samnings um 32 milljónir króna. Heildarvelta fasteignaviðskipta hefur því aukist um rúmlega 24% frá árinu 2014 og kaupsamningum fjölgað um rúmlega 20%.

Sé litið til höfuðborgarsvæðisins stefnir heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga í um 285 milljarða króna, kaupsamningar verða um 7.400 og meðalupphæð kaupsamnings verður um 38,5 milljónir króna. Heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2014 var  232 milljarðar króna og fjöldi kaupsamninga var 6.274. Meðalupphæð samninga árið 2014 var um 36,9 milljónir króna. Heildarvelta á höfuðborgarsvæðinu hefur því aukist um tæplega 23% og fjöldi kaupsamninga hefur aukist um tæplega 18%.

Smelltu hér ef þú vilt skoða tímaraðir með veltu og fjölda kaupsamninga. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið "Save target/link as" og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar