Þjóðskrá03. febrúar 2016

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2016

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2016 var 543. Heildarvelta nam 24,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 44,9 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 14,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 5,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 4 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2016 var 543. Heildarvelta nam 24,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 44,9 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 14,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 5,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 4 milljörðum króna.

Þegar janúar 2016 er borinn saman við desember 2015 fækkar kaupsamningum um 17,6% og velta minnkar um 6,5%. Í desember 2015 var 659 kaupsamningum þinglýst, velta nam 26,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 39,5 milljónir króna.

Þegar janúar 2016 er borinn saman við janúar 2015 fjölgar kaupsamningum um 14,3% og velta eykst um 24,1%. Í janúar 2015 var 475 kaupsamningum þinglýst, velta nam 19,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 41,4 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 3 í janúar 2016 eða 0,6% af öllum samningum. Í desember 2015 voru makaskiptasamningar 10 eða 1,7% af öllum samningum. Í janúar 2015 voru makaskiptasamningar 27 eða 6,5% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á desember 2015 og janúar 2016

Desember 2015

Janúar 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

18.134

504

14.578

394

-19,6%

-21,8%

Sérbýli

5.628

102

5.834

104

3,7%

2,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.300

53

3.957

45

72,0%

-15,1%

Samtals

26.062

659

24.368

543

-6,5%

-17,6%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á janúar 2015 og janúar 2016

Janúar 2015

Janúar 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

12.649

355

14.578

394

15,2%

11,0%

Sérbýli

4.122

73

5.834

104

41,5%

42,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.871

47

3.957

45

37,8%

-4,3%

Samtals

19.642

475

24.368

543

24,1%

14,3%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Janúar 2015
Desember 2015
Janúar 2016
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
414
606
498
20,3%
-17,8%
Makaskipti eða lausafé
29
11
5
-82,8%
-54,5%
Makaskipti
27
10
3
-88,9%
-70,0%
Lausafé
2
1
2
-
-
Hlutfall makaskipta
6,5%
1,7%
0,6%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar