Þjóðskrá17. febrúar 2016

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í janúar 2016

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 145,9 stig í janúar 2016 (janúar 2011=100) og lækkar um 2,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 4,7%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 145,9 stig í janúar 2016 (janúar 2011=100) og lækkar um 2,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 4,7%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í janúar 2016.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 850 samningar, sem þinglýst var í janúar 2016. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í janúar 2016 eru því unnar upp úr 501 leigusamningum sem þinglýst var í janúar 2016.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í janúar 2016 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

2865

2502

2073

1928

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

2275

2221

2070

1451

Kópavogur

-

2117

1793

1525

Garðabær og Hafnarfjörður

1903

2151

1763

1626

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

2028

2199

1902

1684

Breiðholt

2998

2023

1743

1676

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

1424

-

Suðurnes

-

1460

1442

1153

Vesturland

-

1474

1386

1190

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

1644

-

745

Akureyri

-

1782

1381

1352

Austurland

-

1580

1251

851

Suðurland

-

1521

2525

1131

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar