Þjóðskrá09. mars 2016

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2016

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2016 var 651. Heildarvelta nam 30 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 46,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli nam 18,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 4,9 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2016 var 651. Heildarvelta nam 30 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 46,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli nam 18,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 4,9 milljörðum króna.

Þegar febrúar 2016 er borinn saman við janúar 2016 fjölgar kaupsamningum um 19,9% og velta eykst um 23,1%. Í janúar 2016 var 543 kaupsamningum þinglýst, velta nam 24,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 44,9 milljónir króna.

Þegar febrúar 2016 er borinn saman við febrúar 2015 fjölgar kaupsamningum um 49,3% og velta eykst um 90,7%. Í febrúar 2015 var 436 kaupsamningum þinglýst, velta nam 15,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 36,1 milljón króna.

Makaskiptasamningar voru 21 í febrúar 2016 eða 3,5% af öllum samningum. Í janúar 2016 voru makaskiptasamningar 3 eða 0,6% af öllum samningum. Í febrúar 2015 voru makaskiptasamningar 7 eða 1,7% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á janúar 2016 og febrúar 2016

Janúar 2016

Febrúar 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

14.578

394

18.079

478

24,0%

21,3%

Sérbýli

5.834

104

6.970

127

19,5%

22,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.957

45

4.941

46

24,9%

2,2%

Samtals

24.368

543

29.990

651

23,1%

19,9%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á febrúar 2015 og febrúar 2016

Febrúar 2015

Febrúar 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

10.146

323

18.079

478

78,2%

48,0%

Sérbýli

4.294

90

6.970

127

62,3%

41,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.286

23

4.941

46

284,3%

100,0%

Samtals

15.725

436

29.990

651

90,7%

49,3%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Febrúar 2015
Janúar 2016
Febrúar 2016
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
414
498
605
46,1%
21,5%
Makaskipti eða lausafé
8
5
23
187,5%
360%
Makaskipti
7
3
21
200%
600%
Lausafé
1
2
2
-
-
Hlutfall makaskipta
1,7%
0,6%
3,5%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar