Þjóðskrá06. apríl 2016

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í mars 2016

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í mars 2016 var 737. Heildarvelta nam 31,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 43,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 18,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 5,1 milljarði króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í mars 2016 var 737. Heildarvelta nam 31,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 43,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 18,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 5,1 milljarði króna.

Þegar mars 2016 er borinn saman við febrúar 2016 fjölgar kaupsamningum um 13,2% og velta eykst um 6,2%. Í febrúar 2016 var 651 kaupsamningi þinglýst, velta nam 30 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 46,1 milljón króna.

Þegar mars 2016 er borinn saman við mars 2015 fjölgar kaupsamningum um 3,4% og velta eykst um 15,2%. Í mars 2015 var 713 kaupsamningum þinglýst, velta nam 27,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 38,8 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 9 í mars 2016 eða 1,3% af öllum samningum. Í febrúar 2016 voru makaskiptasamningar 21 eða 3,5% af öllum samningum. Í mars 2015 voru makaskiptasamningar 30 eða 4,5% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á febrúar 2016 og mars 2016

Febrúar 2016

Mars 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

18.079

478

18.470

534

2,2%

11,7%

Sérbýli

6.970

127

8.323

148

19,4%

16,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

4.941

46

5.069

55

2,6%

19,6%

Samtals

29.990

651

31.861

737

6,2%

13,2%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á mars 2015 og mars 2016

Mars 2015

Mars 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

17.832

525

18.470

534

3,6%

1,7%

Sérbýli

7.547

144

8.323

148

10,3%

2,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.290

44

5.069

55

121,3%

25,0%

Samtals

27.669

713

31.861

737

15,2%

3,4%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Mars 2015
Febrúar 2016
Mars 2016
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
669
605
682
1,9%
12,7%
Makaskipti eða lausafé
33
23
10
-69,7%
-56,5%
Makaskipti
30
21
9
-70,0%
-57,1%
Lausafé
3
2
1
-
-
Hlutfall makaskipta
4,5%
3,5%
1,3%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar