Þjóðskrá08. apríl 2016

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 1. ársfjórðungur 2016

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. október til 31. desember 2016. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2016. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að  skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða  lífsskoðunarfélögum o.fl.).  Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara  sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga. Sjá nánar upplýsingar um lagabreytingar

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu. 

Úr Þjóðkirkjunni gengu 268 fleiri en í hana á tímabilinu. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 22 fleiri en úr þeim og 236 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 72 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 265 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 227 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild skráðar 1. janúar-31.mars 2016

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1029 498 47 137 6 87 254
Þjóðkirkjan 130 15 43 19 53
Fríkirkjur 69 48 2 4 1 3 11
Önnur skráð trúfélög 373 102 13 34 3 38 183
Lífsskoðunarfélög 78 36 4 10 27 1
Utan trúfélaga 352 291 11 42 2 6
Ótilgreint 27 21 2 4

Miðað er við vinnsludag.
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 498 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. janúar til 31. mars  2016. Af þeim 498 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 48 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 130 í þjóðkirkjuna, þar af voru 15 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 1. ársfjórðungi 2016, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 551 62 27 211 33 207 11
Konur 478 68 42 162 45 145 16
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 551 280 23 69 4 50 125
Konur 478 218 24 68 2 37 129

 

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 916 68 51 340 78 352
1940 og fyrr 6 2 1 1 2
1941-1945 6 2 3 1
1946-1950 14 3 2 1 4 3 1
1951-1955 17 1 2 6 1 7
1956-1960 35 8 2 13 3 7 2
1961-1965 29 4 2 13 10
1966-1970 47 8 3 22 2 10 2
1971-1975 57 3 6 22 4 21 1
1976-1980 93 8 5 36 7 34 3
1981-1985 143 8 11 57 22 42 3
1986-1990 186 9 12 65 20 75 5
1991-1995 187 6 2 65 11 98 5
1996 - 2000 79 2 27 4 41 5
2001 -2005 17 4 3 9 1
2006-2010 14 4 3 7
2011 og síðar 99 58 15 26
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1029 498 47 137 6 87
1940 og fyrr 6 4 1 1
1941-1945 6 2 1 2 1
1946-1950 14 4 2 4 4
1951-1955 17 7 3 3 4
1956-1960 35 11 1 10 11 2
1961-1965 29 13 4 5 1 6
1966-1970 47 15 7 8 4 13
1971-1975 57 32 4 11 4 6
1976-1980 93 46 5 13 2 8 19
1981-1985 143 66 7 19 2 19 30
1986-1990 186 104 2 22 11 47
1991-1995 187 122 7 20 2 12 24
1996 - 2000 79 52 2 11 3 11
2001 -2005 17 8 2 2 1 4
2006-2010 14 5 1 2 6
2011 og síðar 99 7 2 4 4 82

Höfuðborgarsvæðið: Reykjavík, Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar