Þjóðskrá20. apríl 2016

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í mars 2016

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 152,4 stig í mars 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 3,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 152,4 stig í mars 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 3,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í mars 2016.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 601 samningar, sem þinglýst var í mars 2016. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í mars 2016 eru því unnar upp úr 387 leigusamningum sem þinglýst var í mars 2016.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í mars 2016 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3960

2462

2379

1771

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

2845

2200

1837

1961

Kópavogur

2885

2368

2112

1808

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2189

1953

1720

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2064

1978

1878

Breiðholt

-

2209

1874

1567

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

1926

1796

Suðurnes

-

1617

1492

1248

Vesturland

-

1818

1287

-

Vestfirðir

-

-

-

747

Norðurland nema Akureyri

-

1292

-

-

Akureyri

-

1622

1714

1426

Austurland

-

-

-

-

Suðurland

-

1507

1426

1215

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar