Þjóðskrá04. maí 2016

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2016

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2016 var 659. Heildarvelta nam 26,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 40,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 16,9 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 2,5 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2016 var 659. Heildarvelta nam 26,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 40,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 16,9 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 2,5 milljörðum króna.

Þegar apríl 2016 er borinn saman við mars 2016 fækkar kaupsamningum um 10,6% og velta minnkar um 16,8%. Í mars 2016 var 737 kaupsamningum þinglýst, velta nam 31,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 43,2 milljónir króna.

Þegar apríl 2016 er borinn saman við apríl 2015 fjölgar kaupsamningum um 855,1% og velta eykst um 954,2%, en athuga ber að á þessum tíma í fyrra var verkfall lögfræðinga hjá Sýslumannsembætti höfuðborgarsvæðisins í gangi. Í apríl 2015 var 69 kaupsamningum þinglýst, velta nam 2,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 36,4 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 6 í apríl 2016 eða 1% af öllum samningum. Í mars 2016 voru makaskiptasamningar 9 eða 1,3% af öllum samningum. Í apríl 2015 voru makaskiptasamningar 5 eða 7,5% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á mars 2016 og apríl 2016

Mars 2016

Apríl 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

18.470

534

16.883

487

-8,6%

-8,8%

Sérbýli

8.323

148

7.096

128

-14,7%

-13,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

5.069

55

2.519

44

-50,3%

-20,0%

Samtals

31.861

737

26.497

659

-16,8%

-10,6%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á apríl 2015 og apríl 2016

Apríl 2015

Apríl 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

1.742

55

16.883

487

869,2%

785,5%

Sérbýli

550

12

7.096

128

1191,0%

966,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

222

2

2.519

44

1034,5%

2100,0%

Samtals

2.514

69

26.497

659

954,2%

855,1%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Apríl 2015
Mars 2016
Apríl 2016
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
67
682
615
817,9%
-9,8%
Makaskipti eða lausafé
5
10
6
20,0%
-40,0%
Makaskipti
5
9
6
20,0%
-33,3%
Lausafé
0
1
0
-
-
Hlutfall makaskipta
7,5%
1,3%
1%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar