Þjóðskrá24. maí 2016

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í apríl 2016

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í apríl 2016 var 63 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.119 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 20 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 51 skjali (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.254 milljónir króna.

Á sama tíma var 41 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráður í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.007 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.304 milljónir króna. Af þessum samningum voru 11 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 32 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 614 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 536 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar