Þjóðskrá08. júní 2016

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í maí 2016

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í maí 2016 var 604. Heildarvelta nam 28,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 46,6 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 16,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,8 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í maí 2016 var 604. Heildarvelta nam 28,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 46,6 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 16,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,8 milljörðum króna.

Þegar maí 2016 er borinn saman við apríl 2016 fækkar kaupsamningum um 8,3% og velta eykst um 6,2%. Í apríl 2016 var 659 kaupsamningum þinglýst, velta nam 26,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 40,2 milljónir króna.

Vegna verkfalls lögfræðinga hjá Sýslumannsembætti höfuðborgarsvæðisins var engum samningum þinglýst í maí 2015.

Makaskiptasamningar voru 9 í apríl 2016 eða 1,6% af öllum samningum. Í maí 2016 voru makaskiptasamningar 6 eða 1% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á mars 2016 og apríl 2016

Apríl 2016

Maí 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

16.883

487

16.585

420

-13,8%

-1,8%

Sérbýli

7.096

128

8.739

140

23,2%

9,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.519

44

2.821

44

12,0%

0,0%

Samtals

26.497

659

28.145

604

6,2%

-8,3%

 

 

Tafla 2. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Maí 2015
Apríl 2016
Maí 2016
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
0
615
560
-
-8,9%
Makaskipti eða lausafé
0
6
10
-
66,7%
Makaskipti
0
6
9
-
50,0%
Lausafé
0
0
1
-
-
Hlutfall makaskipta
-
1%
6%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar