Þjóðskrá08. júlí 2016

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 2. ársfjórðungur 2016

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. apríl til 30. júní 2016. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. apríl til 30. júní 2016. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að  skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða  lífsskoðunarfélögum o.fl.).  Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga.

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu. 

Úr Þjóðkirkjunni gengu 364 fleiri en í hana á tímabilinu. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 87 fleiri en úr þeim og 264 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 49 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 264 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 300 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild skráðar 1. apríl-30.júní 2016

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1219 564 83 153 12 83 324
Þjóðkirkjan 200 47 51 1 20 81
Fríkirkjur 170 135 10 7 5 13
Önnur skráð trúfélög 417 119 10 34 2 28 224
Lífsskoðunarfélög 61 21 3 5 30 2
Utan trúfélaga 347 274 10 50 9 4
Ótilgreint 24 15 3 6

Miðað er við vinnsludag.
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 564 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. apríl til 30. júní  2016. Af þeim 564 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 135 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 200 í þjóðkirkjuna, þar af voru 47 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 2. ársfjórðungi 2016, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 483 35 45 195 28 169 11
Konur 16 ára og eldri 461 55 60 137 32 164 13
Börn 15 ára og yngri 275 110 65 85 1 14
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 483 251 30 65 5 45 87
Konur 16 ára og eldri 461 241 36 60 6 33 85
Börn 15 ára og yngri 275 72 17 28 1 5 152

Aldur 30. júní 2016

 

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1019 112 126 363 60 334
1940 og fyrr 4 4
1941-1945 14 4 3 2 2 3
1946-1950 15 3 2 2 1 7
1951-1955 28 4 2 7 3 12
1956-1960 29 5 3 9 3 9
1961-1965 51 7 9 15 1 18 1
1966-1970 56 6 2 21 3 22 2
1971-1975 82 5 18 27 6 21 5
1976-1980 129 18 23 53 10 24 1
1981-1985 147 12 17 60 11 45 2
1986-1990 169 15 18 64 14 56 2
1991-1995 151 9 7 45 6 78 6
1996 - 2000 71 2 1 29 34 5
2001 -2005 73 22 21 29 1
2006-2010 54 14 11 24 5
2011-2015 65 28 14 15 1 7
2016 81 46 19 15 1
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1138 557 82 149 11 83
1940 og fyrr 4 2 2
1941-1945 14 6 6 1 1
1946-1950 15 7 3 2 3
1951-1955 28 16 5 4 2 1
1956-1960 29 17 2 5 1 4
1961-1965 51 27 5 10 1 1 7
1966-1970 56 29 5 11 2 9
1971-1975 82 49 6 8 1 5 13
1976-1980 129 50 13 18 1 21 26
1981-1985 147 68 8 13 3 13 42
1986-1990 169 77 5 24 2 24 37
1991-1995 151 95 5 20 3 5 23
1996 - 2000 71 49 3 7 1 11
2001 -2005 73 28 7 8 4 26
2006-2010 54 18 5 12 19
2011-2015 65 19 4 4 1 37
2016 81 7 1 4 1 68

Höfuðborgarsvæðið: Reykjavík, Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar