Þjóðskrá09. ágúst 2016

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2016

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2016 var 631. Heildarvelta nam 26,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 42,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 18,3 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,1 milljarði króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2016 var 631. Heildarvelta nam 26,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 42,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 18,3 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,1 milljarði króna.

Þegar júlí 2016 er borinn saman við júní 2016 fjölgar kaupsamningum um 2,8% og velta eykst um 3,8%. Í júní 2016 var 614 kaupsamningum þinglýst, velta nam 25,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 42 milljónir króna.

Þegar júlí 2016 er borinn saman við júlí 2015 fækkar kaupsamningum um 56,5% og velta minnkar um 50,2%. Í júlí 2015 var 1451 kaupsamningi þinglýst, velta nam 53,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 37,1 milljón króna. Í júlí 2015 var fjöldi þinglýstra samninga óvenjumikill þar sem verið var að þinglýsa samningum sem komu inn meðan verkfall lögfræðinga hjá Sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu stóð yfir.

Makaskiptasamningar voru 14 í júlí 2016 eða 2,3% af öllum samningum. Í júní 2016 voru makaskiptasamningar 8 eða 1,4% af öllum samningum. Í júlí 2015 voru makaskiptasamningar 42 eða 3% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á júní 2016 og júlí 2016

Júní 2016

Júlí 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

15.881

440

18.286

476

15,1%

8,2%

Sérbýli

7.929

138

7.430

129

-6,3%

-6,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.007

36

1.074

26

-46,5%

-27,8%

Samtals

25.816

614

26.790

631

3,8%

2,8%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á júlí 2015 og júlí 2016

Júlí 2015

Júlí 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

35.590

1099

18.286

476

-48,6%

-56,7%

Sérbýli

15.372

295

7.430

129

-51,7%

-56,3%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.813

57

1.074

26

-61,8%

-54,4%

Samtals

53.775

1451

26.790

631

-50,2%

-56,5%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Júlí 2015
Júní 2016
Júlí 2016
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
1394
578
605
-56,6%
4,7%
Makaskipti eða lausafé
43
8
14
-67,4%
75,0%
Makaskipti
42
8
14
-66,7%
75,0%
Lausafé
1
0
0
-
-
Hlutfall makaskipta
3,0%
1,4%
2,3%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar