Þjóðskrá09. ágúst 2016

Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í júlí 2016

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í júlí 2016.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í júlí 2016.

Heildarfjöldi samninga á landinu var 610 í júlí 2016 og fækkar þeim um 9,6% frá júní 2016 og um 53,9% frá júlí 2015. Athuga skal að í júlí 2015 var verið að þinglýsa leigusamningum sem komu inn meðan á verkfalli lögfræðinga hjá Sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu stóð yfir.

Svæði Júlí 2015 Júní 2016 Júlí 2016 Breyting milli ára Breyting milli mánaða
Höfuðborgarsvæðið 1025 435 369 -64% -15,2%
Suðurnes 113 81 97 -14,2% 19,8%
Vesturland 42 37 25 -40,5% -32,4%
Vestfirðir 12 6 5 -58,3% -16,7%
Norðurland 85 75 74 -12,9% -1,3%
Austurland 8 10 14 75% 40%
Suðurland 37 31 26 -29,7% -16,1%
Samtals 1322 675 610 -53,9% -9,6%

Smelltu hér til að skoða tímaraðir frá árinu 2005 í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar