Þjóðskrá08. september 2016

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2016

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2016 var 624. Heildarvelta nam 27 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 43,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 17,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 8,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,6 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2016 var 624. Heildarvelta nam 27 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 43,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 17,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 8,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,6 milljörðum króna.

Þegar ágúst 2016 er borinn saman við júlí 2016 fækkar kaupsamningum um 1,1% og velta eykst um 0,6%. Í júlí 2016 var 631 kaupsamningi þinglýst, velta nam 26,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 42,5 milljónir króna.

Þegar ágúst 2016 er borinn saman við ágúst 2015 fækkar kaupsamningum um 20% og velta minnkar um 6,9%. Í ágúst 2015 var 780 kaupsamningum þinglýst, velta nam 29 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 37,1 milljón króna.

Makaskiptasamningar voru 9 í ágúst 2016 eða 1,5% af öllum samningum. Í júlí 2016 voru makaskiptasamningar 14 eða 2,3% af öllum samningum. Í ágúst 2015 voru makaskiptasamningar 13 eða 1,8% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á júlí 2016 og ágúst 2016

Júlí 2016

Ágúst 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

18.286

476

17.075

467

-6,6%

-1,9%

Sérbýli

7.430

129

8.248

127

11,0%

-1,6%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.074

26

1.631

30

51,9%

15,4%

Samtals

26.790

631

26.953

624

0,6%

-1,1%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á ágúst 2015 og ágúst 2016

Ágúst 2015

Ágúst 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

18.641

594

17.075

467

-8,4%

-21,4%

Sérbýli

8.000

148

8.248

127

3,1%

-14,2%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.318

38

1.631

30

-29,7%

-21,1%

Samtals

28.959

780

26.953

624

-6,9%

-20,0%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Ágúst 2015
Júlí 2016
Ágúst 2016
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
742
605
594
-19,9%
-1,8%
Makaskipti eða lausafé
16
14
10
-37,5%
-28,6%
Makaskipti
13
14
9
-30,8%
-35,7%
Lausafé
3
0
1
-
-
Hlutfall makaskipta
1,8%
2,3%
1,5%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar