Þjóðskrá21. september 2016

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í ágúst 2016

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 154,7 stig í ágúst 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 154,7 stig í ágúst 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í ágúst 2016.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 972 samningar, sem þinglýst var í ágúst 2016. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í ágúst 2016 eru því unnar upp úr 493 leigusamningum sem þinglýst var í ágúst 2016.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í ágúst 2016 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3381

2604

2152

1950

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3669

2329

1892

2072

Kópavogur

-

2558

1985

1909

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2207

1963

1685

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2287

2059

1733

Breiðholt

-

1992

1923

1766

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

-

1469

Suðurnes

-

1524

1512

1159

Vesturland

-

1711

1266

988

Vestfirðir

-

-

1108

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

-

-

Akureyri

2184

2021

1769

1299

Austurland

-

1327

-

-

Suðurland

-

1664

1433

1060

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar