Þjóðskrá05. október 2016

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í september 2016

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2016 var 636. Heildarvelta nam 28,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 45,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 19,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,2 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2016 var 636. Heildarvelta nam 28,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 45,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 19,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,2 milljörðum króna.

Þegar september 2016 er borinn saman við ágúst 2016 fjölgar kaupsamningum um 1,9% og velta eykst um 7,4%. Í ágúst 2016 var 624 kaupsamningum þinglýst, velta nam 27 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 43,2 milljónir króna.

Þegar september 2016 er borinn saman við september 2015 fækkar kaupsamningum um 27,3% og velta minnkar um 20,1%. Í september 2015 var 875 kaupsamningum þinglýst, velta nam 36,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 41,4 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 16 í september 2016 eða 2,7% af öllum samningum. Í ágúst 2016 voru makaskiptasamningar 9 eða 1,5% af öllum samningum. Í september 2015 voru makaskiptasamningar 16 eða 2% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á ágúst 2016 og september 2016

Ágúst 2016

September 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

17.075

467

19.424

475

13,8%

1,7%

Sérbýli

8.248

127

7.292

126

-11,6%

0,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.631

30

2.229

35

36,7%

16,7%

Samtals

26.953

624

28.945

636

7,4%

1,9%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á september 2015 og september 2016

September 2015

September 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.108

663

19.424

475

-12,1%

-28,4%

Sérbýli

7.948

152

7.292

126

-8,2%

-17,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

6.161

60

2.229

35

-63,8%

-41,7%

Samtals

36.216

875

28.945

636

-20,1%

-27,3%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
September 2015
Ágúst 2016
September 2016
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
815
594
601
-26,3%
1,2%
Makaskipti eða lausafé
17
10
18
5,9%
80,0%
Makaskipti
16
9
16
0,0%
77,8%
Lausafé
2
1
2
-
-
Hlutfall makaskipta
2,0%
1,5%
2,7%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar