Þjóðskrá09. nóvember 2016

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í október 2016

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október 2016 var 662. Heildarvelta nam 29,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 44,8 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 19,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 7,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,3 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október 2016 var 662. Heildarvelta nam 29,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 44,8 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 19,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 7,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,3 milljörðum króna.

Þegar október 2016 er borinn saman við september 2016 fjölgar kaupsamningum um 4,1% og velta eykst um 2,5%. Í september 2016 var 636 kaupsamningum þinglýst, velta nam 28,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 45,5 milljónir króna.

Þegar október 2016 er borinn saman við október 2015 fækkar kaupsamningum um 19,1% og velta minnkar um 4,8%. Í október 2015 var 818 kaupsamningum þinglýst, velta nam 31,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 38,1 milljón króna.

Makaskiptasamningar voru 12 í október 2016 eða 1,9% af öllum samningum. Í september 2016 voru makaskiptasamningar 16 eða 2,7% af öllum samningum. Í október 2015 voru makaskiptasamningar 17 eða 2,3% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á september 2016 og október 2016

September 2016

Október 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

19.424

475

19.145

501

-1,4%

5,5%

Sérbýli

7.292

126

7.269

126

0,3%

0,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.229

35

3.268

35

46,6%

0,0%

Samtals

28.945

636

29.682

662

2,5%

4,1%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á október 2015 og október 2016

Október 2015

Október 2016

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

21.404

605

19.145

501

-10,6%

-17,2%

Sérbýli

7.669

134

7.269

126

-5,2%

-6,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.093

79

3.268

35

56,1%

-55,7%

Samtals

31.166

818

29.682

662

-4,8%

-19,1%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Október 2015
September 2016
Október 2016
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
739
601
627
-15,2%
4,3%
Makaskipti eða lausafé
19
18
14
-26,3%
-22,2%
Makaskipti
17
16
12
-29,4%
-25,0%
Lausafé
2
2
2
-
-
Hlutfall makaskipta
2,3%
2,7%
1,9%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar