Þjóðskrá18. nóvember 2016

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í október 2016

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 158,9 stig í október 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 158,9 stig í október 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í október 2016.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 613 samningar, sem þinglýst var í október 2016. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í október 2016 eru því unnar upp úr 361 leigusamningi sem þinglýst var í október 2016.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í október 2016 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3463

2669

2356

1926

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

-

2602

2077

2045

Kópavogur

2684

2604

2032

1952

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2305

1839

1613

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2683

1992

1771

Breiðholt

-

2286

2065

2075

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

-

-

Suðurnes

-

1570

1597

1125

Vesturland

-

1400

1456

1118

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

-

1190

Akureyri

-

1920

1690

1291

Austurland

-

1522

1384

1158

Suðurland

-

1665

1368

1056

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar