Þjóðskrá24. nóvember 2016

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í október 2016

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í október 2016 var 69 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 15.522 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 27 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 66 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.083 milljónir króna.

Á sama tíma var 31 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráður í kaupskrá. Heildarupphæð var 3.101 milljón króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.438 milljónir króna. Af þessum samningum voru 11 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 23 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 651 milljón króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 395 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar