Þjóðskrá21. desember 2016

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í nóvember 2016

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 160,1 stig í nóvember 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,3%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 160,1 stig í nóvember 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,3%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í nóvember 2016.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 593 samningar, sem þinglýst var í nóvember 2016. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í nóvember 2016 eru því unnar upp úr 371 leigusamningi sem þinglýst var í nóvember 2016.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í nóvember 2016 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3551

2644

2288

1951

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3213

2715

2026

1729

Kópavogur

-

2381

2003

2010

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2274

1967

1584

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2245

2067

1685

Breiðholt

-

2465

2059

1656

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

1773

-

Suðurnes

-

1864

1520

1189

Vesturland

-

1573

1423

1176

Vestfirðir

-

-

1137

712

Norðurland nema Akureyri

-

-

1415

-

Akureyri

-

2127

1741

1578

Austurland

-

-

-

1126

Suðurland

-

1807

1515

1141

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar