Þjóðskrá30. desember 2016

Fasteignamarkaðurinn árið 2016

Um 12.400 kaupsamningum var þinglýst árið 2016 á landinu öllu og námu heildarviðskipti með fasteignir tæplega 460 milljörðum króna. Meðalupphæð á hvern samning var um 37 milljónir króna. Til samanburðar má sjá að árið 2015 var veltan rúmlega 370 milljarðar, kaupsamningar 11.298 og meðalupphæð hvers samnings um 33 milljónir króna. Heildarvelta fasteignaviðskipta hefur því aukist um rúmlega 24% frá árinu 2015 og kaupsamningum fjölgað um tæplega 10%.

Sé litið til höfuðborgarsvæðisins stefnir heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga í um 350 milljarða króna, kaupsamningar verða um 7.950 og meðalupphæð kaupsamnings verður um 44 milljónir króna. Heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2015 var  285 milljarðar króna og fjöldi kaupsamninga var 7.369. Meðalupphæð samninga árið 2015 var um 38,6 milljónir króna. Heildarvelta á höfuðborgarsvæðinu hefur því aukist um tæplega 23% og fjöldi kaupsamninga hefur aukist um tæplega 8%.

Smelltu hér ef þú vilt skoða tímaraðir með veltu og fjölda kaupsamninga. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið "Save target/link as" og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar