Þjóðskrá13. janúar 2017

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 4. ársfjórðungur 2016

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. október til 31. desember 2016. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. október til 31. desember 2016. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að  skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða  lífsskoðunarfélögum o.fl.).  Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga.

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu. 

Úr Þjóðkirkjunni gengu 600 fleiri en í hana á tímabilinu. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 73 fleiri en úr þeim og 186 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 162 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 527 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 348 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild skráðar 1. október-31.desember 2016 

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1781 783 83 388 7 128 392
Þjóðkirkjan 183 32 43 3 26 79
Fríkirkjur 156 100 7 19 1 3 26
Önnur skráð trúfélög 574 150 11 91 2 51 269
Lífsskoðunarfélög 169 45 12 61 47 4
Utan trúfélaga 655 454 21 165 1 14
Ótilgreint 44 34 9 1

Miðað er við vinnsludag. 
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 783 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. október  til 31. desember  2016. Af þeim 783 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 100 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 183 í þjóðkirkjuna, þar af voru 32 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 4. ársfjórðungi 2016, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

 Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 867 42 43 309 82 375 16
Konur 16 ára og eldri 639 49 57 180 84 245 24
Börn 15 ára og yngri 275 92 56 85 3 35 4
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 867 418 34 219 5 70 121
Konur 16 ára og eldri 639 304 36 141 54 104
Börn 15 ára og yngri 275 61 13 28 2 4 167

Aldur 31. desember 2016

 

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1538 101 109 501 166 621
1940 og fyrr 6 4 1 1
1941-1945 7 4 2 1
1946-1950 22 6 5 8 1 2
1951-1955 38 7 7 12 3 9
1956-1960 53 5 13 17 3 14 1
1961-1965 69 8 7 24 3 24 3
1966-1970 76 2 3 36 14 20 1
1971-1975 105 12 8 33 21 31
1976-1980 163 9 10 51 29 63 1
1981-1985 233 9 20 80 34 86 4
1986-1990 291 16 15 104 31 117 8
1991-1995 306 7 8 90 24 160 17
1996 - 2000 137 2 1 33 3 93 5
2001 -2005 32 10 9 12 1
2006-2010 55 5 12 24 1 13
2011-2015 61 12 8 24 2 14 1
2016 127 65 27 25 7 3
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1654 776 78 374 6 127
1940 og fyrr 6 2 4
1941-1945 7 2 2 2 1
1946-1950 22 8 3 5 5 1
1951-1955 38 17 3 7 10 1
1956-1960 53 32 2 11 6 2
1961-1965 69 30 3 22 7 7
1966-1970 76 32 3 19 7 15
1971-1975 105 39 8 27 2 13 16
1976-1980 163 58 15 49 18 23
1981-1985 233 95 12 63 1 11 51
1986-1990 291 126 10 78 1 24 52
1991-1995 306 179 4 62 18 43
1996 - 2000 137 102 3 15 1 3 13
2001 -2005 32 11 2 2 3 14
2006-2010 55 25 2 5 23
2011-2015 61 18 4 7 1 31
2016 127 7 5 14 1 1 99

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar