Þjóðskrá18. janúar 2017

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í desember 2016

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 160,7 stig í desember 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,9%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 160,7 stig í desember 2016 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,9%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í desember 2016.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 538 samningar, sem þinglýst var í desember 2016. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í desember 2016 eru því unnar upp úr 339 leigusamningum sem þinglýst var í desember 2016.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í desember 2016 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3485

2893

2629

1796

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

2818

2757

1893

2093

Kópavogur

-

1983

1987

1891

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2367

2056

1535

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

3208

2713

2150

1977

Breiðholt

-

2401

2054

2018

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

1624

1782

Suðurnes

-

1585

1590

1203

Vesturland

-

-

1333

1202

Vestfirðir

-

-

1085

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

1411

-

Akureyri

-

2191

1820

1228

Austurland

-

-

-

-

Suðurland

-

1876

1528

1183

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar